"Í Ólátagarði"

mánudagur, desember 11, 2006

Bloggleti

Það hrjáir einhver sýki landann í þessu húsi, sýki sem er kölluð bloggleti. Reynt verður að vinna bug á henni á næstu dögum. Hún tengist eiginlega frekar tölvuleti, en þegar dagur er að kveldi kominn, hefur ekki verið nenna að kveikja á tölvunni.

En hér eru nokkrir molar, þar til myndir koma inn:
-Húsmóðir var kölluð úr vinnu í hádeginu til að sækja veikan soninn - niðurgangur er það í dag! spurning hvort það er flensa sem hefur hrjáð vinina að undanförnu eða fúkkalyfin...en verið er að þurrka drenginn upp (slæmt og langvinnt kvef og vökvi í eyrum)
-Sonurinn byrjaði að ganga um helgina.. rígmontinn með sig og foreldrarnir bráðnuðu yfir tilburðinum við gönguna.
-Sonurinn misskilur eitthvað tilveruna. Heldur að honum leyfist nú að vera frekur og öskra til að fá sínu framgengt...kannski bara best hann skríði áfram, ef aukin leikni eykur þessi nýju taktík sonarins
-Sonurinn er kominn í eftirlit vegna fótaburðar, næsta skoðun 15 mánaða
-Búið er að smella af hundruðum mynda, en það að hafa 2 myndavélar hefur bara leitt til að nú er lengra á milli þess sem vélarnar eru tæmdar. "myndavélakortatæmingarleti semsagt"
-Húsmóðirin hefur ekki enn lokað nýjum starfssamningi... vonandi verður það í dag eða á morgun sem nánasta framtíð verður ljós.
-Húsbóndinn er á fullu í próflestri... Mánuður í lokaprófið á þessari önn!
-Húsbóndinn óskar eftir þolinmóðum tilraunadýrum í sjónmælingar, áhugasamir hafi samband.
-Óðinn er mikill stríðnispúki... hvaðan skyldi hann hafa þau gen... plokkar bringuhár pabba sins, hrellir köttinn og skellihlær, bregður fólki, kitlar og reynir að komast undan í sífellu (eltingarleikur).
- Jólin eru mjög spennandi í huga lítils manns. Óttablandin virðing er borin fyrir þessum skrítna kalli í rauða búningnum. Jólaskraut og jólaljós mjög spennandi og svo er dansað öllum stundum við jólalögin.

-jæja, best að nota tímann til að vinna meðan sonurinn sefur...

5 Comments:

  • Það má nota mig í sjónmælingar ef það vantar sjónlaus fórnarlömb...
    kv
    Gagga

    By Anonymous Nafnlaus, at 11/12/06 20:34  

  • Til hamingju með skrefin nýju hjá frumburðinum, þetta eru bara þvílík tíðindi og voða stuð greinilega á heimilinu. Líka til hamingju með að hafa loksins haft af þessa nýju færslu, maður er alltaf að fylgjast með... Svo er ég meira en lítið til í að koma í svona sjónmælingaæfingar, þarf einmitt alveg að fara að updeita mælingarnar hjá mér... luv, Dísa

    By Anonymous Nafnlaus, at 11/12/06 22:09  

  • Hæ, hó!
    Var að lesa bloggið. Hvað er þetta með að hann sé í eftirliti vegna fótaburðar. Eruð þið með hann í eftirliti eða læknir. ? :-S
    Annars get ég verið sjónmælingatilraunadýr.
    Kv. RB.

    By Anonymous Nafnlaus, at 13/12/06 16:32  

  • Hann hefur hingað til staðið svo skakkur í annan fótinn, að við létum tékka á því. Læknir ætlar að fylgjast með hvort lagist eða versni... oft fyrst vegna vöðvaleysis, en lagast oftast nær...

    Þið eruð snillar að bjóða ykkur fram. Hann verður í sambandi og finnur tíma með ykkur. Þarf að skila núna 5 mælingum af sér í viku.

    og þess má einnig geta að atvinnumálum hefur verið lent og verð ég Markaðsstjóri osts og smjörs hjá Mjólkursamsölunni.

    By Blogger Gugga, at 14/12/06 17:24  

  • Innilega til hamingju Gugga með lendinguna í starfinu, þetta hljómar voða vel, vonandi í takt við það sem þú vildir. HB

    By Anonymous Nafnlaus, at 14/12/06 21:36  

Skrifa ummæli

<< Home